5.8.2009 | 09:39
Vil benda ykkar á góða bók
|
Rannsaka íslensku bankana |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.7.2009 | 15:46
"Sanngjörn málsmeðferð"
Hvaða sanngirnir er í því að lán okkar hafa hækkað um fleiri tugi prósenta vegna hrunsins? Er Björgólfur Thor eitthvað í verri aðstæðum en Jón og Gunna að borga af sínum lánum?
|
Öryggi starfsmanna ógnað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.12.2008 | 09:07
Jólagjöf Baugs til íslensks almennings
|
Whittard of Chelsea gjaldþrota |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
22.12.2008 | 11:04
Raunverulegt dæmi um einkavæðingu hagnaðarins frá í gær
Hér að neðan er fjallað um að eigendur Milestone skuldi 115 milljarða! en eignir eru metnar á um 60 milljarða. Þetta félag er því gjaldþrota og ríkið verður því að taka við því eins og mörgum öðrum "fyrirbærum" sem stofnuð hafa verið til hin síðari ár. Ótrúlegt er hins vegar að lesa þennan samning vegna þess að ríkið tekur á sig tapið en fyrrverandi eigendur fá hluta af hagnaði ef eignir hækka í verði. Þeir munu hins vegar ekki taka á sig tapið ef það verður meira! Hvaða rugl er þetta? Hvað segir viðskiptaráðherra um þetta? Eru þessir viðskiptamenn sem kunna ekki almennan rekstur ekki búnir að eyðileggja nógu mikið þó að hagnaðinum verði ekki mokað í vasann á þeim aftur? Hvar eru reglurnar sem átti að setja fyrir mörgum vikum síðan og átti að vinna eftir? Er þetta bara brot af ruglinu sem er í gangi?
Milestone-eigendum hyglað
Verið er að hygla eigendum fjárfestingarfélagsins Milestone með þeim aðferðum sem notaðar eru við endurskipulagningu þess, segir Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta. Þessi meðferð sé óeðlileg í nauðasamningum eða gjaldþroti.
Samkvæmt frétt í Morgunblaðinu er verið að endurskipuleggja fjárfestingafélagið Milestone sem bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir eiga. Félagið skuldar 115 milljarða en eignir þess eru metnar á 60 milljarða. Við endurskipulagninguna eru því 55 milljarðar afskrifaðir. Miðað við þetta er eign bræðranna orðin að engu.
Hins vegar er þeim tryggður 13% eignahlutur ef eignirnar hækka í verði umfram þessa 60 milljarða. Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, segir þetta ekki hefðbundin vinnubrögð. Hann segir að ekkert jafnræði sé í þeim samningum sem skilanefndir bankanna séu að gera við fyrirtæki. Sömu reglur gildi ekki um alla eigendur og það sé óréttlátt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2008 | 20:36
Bankastjórar
|
Ræða við samtök um horfurnar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.12.2008 | 17:26
Ólög
|
Next og Noa Noa aftur í eigu sömu hjóna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2008 | 17:12
Óvinsældir ríkisstjórnar
Ríkisstjórn Íslands er líka að setja heimsmet í óánægju meðal almennings. Hún er orðin álíka vinsæl og Bush stjórnin meðal Bandaríkjamanna. Segir það ekki eitthvað? Er ekki kominn tími á kosningar?
8.12.2008 | 22:03
Þetta þarf að stöðva strax!
|
Stefna að yfirtöku á stjórn Exista |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.11.2008 | 22:36
Ríkið á Tryggingamiðstöðina. Hvað er að gerast?
Stoðir (áður FL Group) var búið að sækja um greiðslustöðvuna. Þess vegna hljóta þeir að vera núna í meðferð ríkisbankanna.Þrír stærstu lánadrottnar Stoða eru viðskiptabankarnir Glitnir, Kaupþing og Landsbankinn.
Núna eru fjárfestar byrjaðir að bjóða í brunarústir útrásarvíkinganna.
Kaldbakur segist vera tilbúinn að borga 42 milljarða fyrir TM. Hver á að fjalla um þetta tilboð? Er hagstætt að selja núna? Hvað fékk TM fyrir hlut sinn í norska tryggingarfélagið Nemi sem það seldi fyrir stuttu síðan? Er ekki eðlilegast að það verði opið útboð þar sem leikreglur eru alveg ljósar og jafnræðis sé gætt? Væri þetta ekki góð fjárfesting fyrir lífeyrissjóðina okkar? Hver tekur á móti tilboðum?
Er sami leikurinn að byrja aftur? Enginn hugsar um hag almennings og að hágmarka ágóða okkar sem eigum bankakerfið?
|
42 milljarðar kr. fyrir TM |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.11.2008 | 09:51
FME fær 10 í einkunn hjá Geir H. Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu
Í stað þess að starfsfólk FME sé látið taka pokann sinn vegna hrunsins er það allt í einu orðið valdamesta fólk landsins þar sem það stjórnaði öllum stóru bönkunum.
Svo að staðreyndum sé haldið til haga hefur Jónas Fr. Jónsson neitað viðtali í 7 vikur. Honum ber að veita viðtal vegna þess að hann er opinber starfsmaður og þiggur laun frá almenningi. Hann er í vinnu hjá okkur!
Ástæðan fyrir því að búið er að slá skjalborg utan um FME er að þar eru upplýsingar sem gott væri fyrir almenning að vita en við komumst líklega aldrei að nema að steypa þessum stjórnvöldum og meðreiðarsveinum þeirra.
Að lokum vil ég minn á það að Kaupþing sendi Jónas Fr. Jónssyni rauðvín fyrir síðustu áramót og starfsfólki FME. Aðrir bankar sendu þeim konfekt fyrir jólin. Rauðvínsgjöfin var ekki afþökkuð og sagði Jónas Fr. Jónsson að þær myndu ekki hafa áhrif á dómgreind starfsmanna. Ekki ætla ég að dæma um það.
Lifi byltingin!
|
Frammistaða FME ekki undirrót sameiningar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)


ingolfurasgeirjohannesson
gummisteingrims
laugardalur
johannpall
vest1
