Vil benda ykkar á góða bók

Þessa dagana er ég að lesa bókina "The best way to rob a bank is to own one" eftir Íslandsvininn William K. Black. Í bókinni er lýst því umhverfi sem þarf að vera til að svikamyllur gangi upp. Lykilþættirnir eru í því að stjórnendur fyrirtækjanna fái ríflegan ávinning í gegnum hlutbréfaeign sína í hlutafélaginu, uppgjör séu ógagnsæ (áhættan er ekki ljóst í rekstri félagsins), eftirlitskerfið gert veikburða og talið óþarft, ofurlaun til að verðlauna samvinnuþýða einstaklinga og óraunveruleg viðskiptavilld búin til.
mbl.is Rannsaka íslensku bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Þar liggur í augum uppi að þessir gaurar lásu bókina og nýttu sér aðferðin. Þetta eru engir hálvitar. Þeir gerðu þetta vitandi vits. Föttuðu bara ekki fyrr en of seint að þeir voru komnir út fyrir öll mörk að möguleiki væri á að seðlabankinn íslenski gæti reddað þeim eins og seðlabankar í Evrópu og Bandaríkjunum gerðu með þarlenda banka sem höguðu sér þó ekki eins glæfralega og þeir íslensku.

Spái því að það komi önnur holskefla yfir heiminn í okt. næstkomandi. Kalifornía á þá að greiða himinháar afborganir af lánum, sem þeir eiga ekki möguleika á að standa við! Það mun hafa dóminó áhrif um allan heim!

algor (IP-tala skráð) 5.8.2009 kl. 10:26

2 Smámynd: Jón Magnússon

Það er hægt að mæla með því að lesa þessa bók. Það er meinleg ritvilla hjá þér það eru stafavíxl í að eiga own lagfærðu það.   En hugmyndaflugið hér sló samt út það sem William K. Black lét sér detta í hug.

Jón Magnússon, 5.8.2009 kl. 11:17

3 identicon

wawwww hver er að tala , þú Jón ...þú verður og átt að skamma  huðskamma strálsins  sem var yfir ( í rauninni undir  ) Fjármaálaeftirliti IFM  , og vinir hans ( bankastjórara hjá kb , glitni og landsbanka ) voru yfir honum , þar sem jón stráksi var svo ljufur og mjulur að allir hinir gátu leika að honum..aumingja jón  og jón ...

borgari (IP-tala skráð) 5.8.2009 kl. 11:23

4 Smámynd: Ólafur Örn Pálmarsson

Margir óttast enn afskriftareikninga erlendra banka og það gæti komið einmitt holskefla í október. Sögulega gerast flest hrun á hlutabréfamörkuðum í október.

Það er alveg ljóst að hugmyndaflug ákveðinna íslenskra viðskiptamanna var eitthvað sem manni hefði aldrei dottið í hug að væri hægt í bankarekstri. Þessa vegna er gífurlega mikilvægt að þessir hlutir verði gerðir upp og við getum byggt hér aftur upp eðlilegt þjóðfélag með góðum viðskiptaháttum.

Ólafur Örn Pálmarsson, 5.8.2009 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband